Við viljum tryggja að aðstæður til þess að eldast í sveitarfélaginu séu til fyrirmyndar. Aðgengi íbúa og gesta að góðri heilbrigðisþjónustu í sveitarfélaginu er ein af grunnforsendum þess að hér þrífist gott samfélag.
Við þurfum að halda áfram að styðja vel við bakið á hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli og kanna möguleika á fjölgun hjúkrunarrýma. Með tilkomu VISS vinnustaðar og uppbyggingu búsetuúrræðis hefur náðst gríðarlegur árangur í uppbyggingu sem styður við bakið á okkar viðkvæmasta hópi.
- Efla starfsemi VISS á Hvolsvelli. Auka framboð af störfum og lengja opnunartíma
- Auka samráð og samtal við HSU um eflingu heilbrigðisþjónustu á svæðinu
- Virkja og efla starfsemi öldungaráðs í samráði við alla hlutaðeigandi aðila
- Halda áfram að bæta aðgengismál víðs vegar í sveitarfélaginu, að byggingum og útivistarsvæðum
- Halda áfram uppbyggingu í kringum Kirkjuhvol m.a. með lóðum fyrir 60+ og mögulegri félagsaðstöðu fyrir eldri borgara
- Hefja undirbúning að stækkun Kirkjuhvols
- Vinna að uppbyggingu björgunarmiðstöðvar á Hvolsvelli með öllum viðbragðsaðilum
- Bæta og útvíkka möguleika á akstursþjónustu t.d. í þágu eldri borgara