Til þess að geta veitt framúrskarandi þjónustu við íbúa sveitarfélagsins er það grunnforsenda að rekstur sveitarfélagsins sé í góðum málum. Okkar markmið er að skila skatttekjum aftur til íbúa í formi aukinnar og betri þjónustu.
Tekjur sveitarfélagsins hafa aukist jafnt og þétt með fjölgun íbúa og aukinni uppbyggingu. Undanfarin ár hafa fjárfestingar sveitarfélagsins í innviðum aldrei verið meiri. Við munum áfram horfa til þess að einfalda stjórnsýslu sveitarfélagsins og auka skilvirkni og samráð við íbúana.
- Stuðla að ábyrgum rekstri sveitarfélagsins til framtíðar
- Styrkja innviði stjórnsýslunnar og stofnana innan hennar
- Einfalda skipurit stjórnsýslu og skýra til muna
- Upplýsingar úr daglegum rekstri sveitarfélagsins aðgengilegar íbúum og kjörnum fulltrúum í rauntíma
- Tileinka okkur nýjar stafrænar lausnir og óþrjótandi möguleika gervigreindar með ábyrgum hætti
- Bæta upplýsingagjöf og aðgengi að upplýsingum til íbúa
- Halda áfram að lækka álögur á íbúa t.d. með lækkun á álagningarprósentu fasteignaskatts, bæði fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði
- Stuðla að því að efla fjarskipti í sveitarfélaginu öllu