Skipulagsmál eru hornsteinn uppbyggingar hvers sveitarfélags. Án skipulags gerist ekki neitt. Forsendur allra framkvæmda og uppbyggingar eru að skipulagsmál séu tekin föstum tökum.
Við höfum undanfarin ár sýnt forystu í skipulagsmálum og viljum halda áfram að skapa skýra og staðfasta sýn en líka að leyfa hugmyndaflugi einstaklingsins að njóta sín. Umhverfismál í heild sinni eru okkur gríðarlega mikilvæg því öll viljum við skilja við eins vel og við getum fyrir komandi kynslóðir. Greiðar og öruggar samgöngur skipta okkur gríðarlegu máli. Í dreifbýlu sveitarfélagi eins og okkar eru vegirnir okkar lífæðar.
- Endurskoða aðalskipulag sveitarfélagsins m.t.t. skýrari stefnu, einfaldari ferla og gagnsæis
- Gera verulegar umbætur á grenndarstöðvum í sveitarfélaginu
- Auka verðmætasköpun þegar kemur að úrgangsmálum t.d. með brennslulausn fyrir óendurvinnanlegt sorp á Strönd
- Koma á samstarfi við Veitur um leit að heitu vatni í sveitarfélaginu
- Skipuleggja framtíðarlausnir er varðar fráveitur í þéttbýli sveitarfélagsins á Hvolsvelli og Skógum
- Ráðast í markvisst viðhald og mælavæðingu á kaldavatnsveitum sveitarfélagsins
- Vinna deiliskipulag fyrir nýtt athafna- og iðnaðarsvæði á Hvolsvelli
- Deiliskipuleggja íbúðabyggð og verslunar- og þjónustusvæði á Skógum
- Sveitarfélagið haldi áfram að styðja við landeigendur við uppbyggingu á ferðamannastöðum
- Lokið verði við úthlutun lóða innan þjóðlendna sveitarfélagsins
- Stilla upp tilraunaverkefni með ríkinu um að sveitarfélagið sjái um viðhald og uppbyggingu á héraðs- og tengivegum