Líflegt samfélag eins og við búum að hér í Rangárþingi eystra byggir á sterkri menningu. Menning tengir fólk saman og gerir samfélagið aðlaðandi til að búa í og starfa. Við viljum hlúa að öflugu menningarlífi með því að styðja við félög, fyrirtæki og einstaklinga.
Tækifæri okkar hér í Rangárþingi eystra er kemur að rótgróinni menningu, til dæmis hvað varðar Njálssögu, eru óþrjótandi. Við viljum skapa grundvöll og stuðning til þess að tækifærin verði nýtt. Nýsköpun er þegar hugmynd er gerð að einhverju sem skapar raunverulegt virði: vöru, þjónustu, lausn eða einfaldlega betri leið til að gera hlutina.
- Auka fjármagn til úthlutunar úr menningarsjóði sveitarfélagsins
- Félagsheimili í þágu íbúa og ákvarðanir verði teknar í samráði allra eigenda varðandi nýtingu og framtíðarmöguleika
- Styðja við nýsköpun í matvælaiðnaði, gríðarleg tækifæri til staðar — Rangárþing eystra verði matarkista Íslands
- Halda áfram því metnaðarfulla verkefni að búa Njálureflinum framtíðarheimili
- Marka stefnu um uppbyggingu og framtíðarmöguleika Gamla bæjarins í Múlakoti
- Halda áfram metnaðarfullri uppbyggingu byggðasafnsins í Skógum
- Setja á fót samfélagssjóð sem styrkir rausnarlega verkefni sem bæta lífsgæði íbúa
- Hefja framkvæmdir við “Miðbæjargarðinn” á Hvolsvelli
- Auka aðgengi íbúa til að nýta húsnæði, landsvæði og aðstöðu sveitarfélagsins til nýsköpunarverkefna
- Vinna að uppbyggingu sögustaða í sveitarfélaginu í samvinnu við landeigendur