Íþrótta- og æskulýðsmál eru ein mikilvægasta fjárfesting sem sveitarfélag getur ráðist í. Þar mótast ekki bara heilsa og líðan barna og ungmenna heldur líka sjálfstraust, agi og samfélagsvitund.
Frístundastyrkur er nú loks orðinn að veruleika og stuðningur við íþróttafélögin okkar hefur aldrei verið meiri. Það er kominn tími á mikla fjárfestingu í uppbyggingu innviða þegar kemur að íþrótta- og æskulýðsmálum.
- Skipuleggja og forgangsraða uppbyggingu íþróttamannvirkja til framtíðar í góðu samráði við íbúa
- Kanna grundvöll fyrir “frístundabíl” á milli Hellu og Hvolsvallar
- Byggja upp fjölbreytt útivistarsvæði í skógum sveitarfélagsins, t.a.m. Tumastaðaskógi
- Fjárfesta í uppbyggingu sundlaugasvæðis á næstu árum
- Hjóla- og göngustíga í sveitarfélaginu öllu
- Halda áfram að vinna með markmið heilsueflandi samfélags
- Kanna rekstrargrundvöll og notkunarmöguleika fyrir “Húsi frítímans”
- Styðja við áframhaldandi öflugt starf félagsmiðstöðvar
- Hækka styrki til iðkenda úr íþrótta- og afrekssjóði sveitarfélagsins
- Stuðla að aukinni samvinnu íþróttafélaga í Rangárvallasýslu
- Auka aðgengi íbúa að frjálsum tímum til íþróttaiðkunar í íþróttahúsi