Málefni leik-, grunn- og framhaldsskóla eru mikilvæg og eru lykillinn að sterkri framtíð. Með öflugu, framsæknu og faglegu skólastarfi sköpum við skilyrði fyrir börnin okkar til að takast á við framtíðina ásamt því að starfsmenn fá einnig að blómstra í starfi.
Á síðasta kjörtímabili var opnaður nýr og glæsilegur leikskóli á Hvolsvelli. Ungmenni á framhaldsskólaaldri verða að eiga þess kost að sækja sér framhaldsmenntun í sinni heimabyggð og þarf því sveitarfélagið að eiga lifandi samtal við FSu um m.a. málefni heimavistar og strætóferða til og frá skóla.
- Koma á gjaldfrjálsum máltíðum í leikskóla líkt og nú þegar hefur verið innleitt í grunnskóla
- Innleiða gjaldfrjálsan leikskóla í skrefum
- Samræma starfsdaga og lokunardaga milli skólastiga eins og kostur er
- Endurskoða styrki til aksturs leikskólabarna sem búa í dreifbýli með það að markmiði að hann nýtist fleirum
- Vinna að og hefja viðbyggingu við Hvolsskóla í góðu samráði við samfélagið í heild
- Efla starfsemi vinnuskólans og skoða möguleikann á því að opna á umsóknir frá ungmennum utan sveitarfélagsins
- Þrýsta á að almenningssamgöngur verði alvöru valkostur fyrir nemendur framhaldsskóla
- Leggja þunga áherslu á góða og örugga heimavist við FSu
- Styðja eftir fremsta megni við faglegt starf Hvolsskóla og Öldunnar
- Auka framboð og aðgengi að íslenskukennslu fyrir íbúa af erlendu bergi brotnu