Atvinnumál

Öflugt atvinnulíf er besta byggðastefnan og ein af grunnstoðum samfélagsins. Standa þarf vörð um þær atvinnugreinar sem fyrir eru, t.d. landbúnað, á sama tíma og við styðjum við uppbyggingu nýrra tækifæra. Þannig tryggjum við sterkt samfélag til framtíðar.

Ferðaþjónustan er okkar stóriðja og á að skapa tækifæri í sveitarfélaginu, ekki bara meiri umferð. Uppbygging þarf að vera skynsöm og taka mið af sérstöðu svæðisins. Rangárþing eystra er eitt öflugasta landbúnaðarhérað landsins. Við leggjum áherslu á að þannig verði það um ókomna tíð og viljum stuðla að því að tækifæri til eflingar atvinnugreinarinnar verði nýtt til hins ítrasta.

  • Nauðsynlegt er að sveitarfélagið sé tilbúið til aðstoðar, veita upplýsingar, fræða og miðla og styðja við frumkvæði og framtak einstaklingsins þegar kemur að hvers konar atvinnuuppbyggingu
  • Markviss lækkun fasteignagjalda á atvinnu- og iðnaðarhúsnæði
  • Vera tilbúin með fjölbreyttar verslunar- og þjónustulóðir til uppbyggingar bæði í þétt- og dreifbýli
  • Gatnagerðargjaldi atvinnulóða verði stillt í hóf
  • Auka upplýsingagjöf og miðlun varðandi aðgengi að fjármagni til nýsköpunar
  • Uppbygging á miðbæjarsvæði Hvolsvallar hefjist á kjörtímabilinu til að auka fjölbreytta flóru atvinnulífs
  • Hefjast handa við uppbyggingu Hamragarða samkvæmt gildandi deiliskipulagi
  • Leggja áfram þunga áherslu á störf án staðsetningar. Vera alltaf reiðubúin að taka á móti opinberum störfum og efla starfsemi hins opinbera hér í okkar sveitarfélagi
  • Setja aukna áherslu á að ljúka vinnu við sameiginlega atvinnustefnu sveitarfélaga í Rangárvallasýslu
  • Halda áfram að tala fyrir auknum notkunarmöguleikum Landeyjahafnar og gera okkur gildandi í málefnum hafnarinnar