Til baka
Hulda Dóra Eysteinsdóttir
xD

Hulda Dóra Eysteinsdóttir

4. sæti

45 ára

Sjálfstætt starfandi, hrossabóndi

Áhugamál

Ég verð að segja hestamennska númer eitt, tvö og tíu hjá mér og okkur í fjölskyldunni

Afhverju ákvaðst þú að taka slaginn með D-listanum?

„Hví ekki?“ hugsaði ég með mér í smástund. Fyrir mér skiptir máli að taka þátt, láta sig varða og leggja sitt af mörkum til að byggja upp gott samfélag fyrir alla.

Fyrir hvaða málefnum brennur þú?

Sem snýr að fjölskyldum, börnum, öruggu og heilbrigðu umhverfi fyrir okkur öll. Unga sem aldna.

Skemmtileg staðreynd um þig

Ég get verið ansi hjátrúarfull. Get td ekki horft á kött ganga yfir veg!! Ekki veit ég hvað gæti gerst en þetta beit ég í mig sem krakki